föstudagurinn 6. nóvember 2015
Tvær nýjar vefmyndavélar
Orkubú Vestfjarða hefur tekið í gagnið tvær nýjar vefmyndavélar sem hægt er að nálgast á vefmyndavélarsíðu Snerpu.
Fyrri vélin er staðsett á Orkustöð Orkubúsins við Mjósund og snýr í átt að Tungudal.
Seinni vélin er staðsett á Mjólkárvirkjun í botni Borgarfjarðar í Arnarfirði.
Í dag má nálgast ellefu vefmyndavélar á Vestfjörðum á vefmyndavélasíðu Snerpu.
Sturla Stígsson